Setja upp Outlook Express fyrir tölvupóstreikninginn

 

Á við: Office 365 for professionals and small businesses, Office 365 for enterprises, Microsoft Exchange, Live@edu

Efni síðast breytt: 2011-11-23

Þú getur tengt Outlook Express við tölvupóstreikninginn þinn með því að nota POP3- eða IMAP4-tengingu.

Hvernig set ég upp aðgang að Outlook Express í Outlook Live?

  1. Opna Outlook Express. Leiðsagnarforrit internettengingar verður keyrt þegar Outlook Express er opnað í fyrsta skipti. Ef Leiðsagnarforrit Internet-tengingar keyrir ekki þegar Outlook Express er opnað í fyrsta skipti skaltu gera eftirfarandi:

    1. Á valmyndinni Verkfæri skaltu smella á Reikningar.

    2. Í svarglugganum Internetreikningar skaltu smella á Bæta við og síðan á Póstur.

  2. Á síðunni Nafn þitt skaltu slá inn fullt nafn í reitinn Nafn til birtingar.

  3. Á síðunni Netfang fyrir internetið er netfangið fært inn í reitinn Netfang.

  4. Á síðunni Heiti tölvupóstþjóna í fellivalmyndinni undir Þjónn fyrir aðsendan póst er <gerð>-þjónn skaltu velja IMAP eða POP3. IMAP4 styður fleiri aðgerðir.

  5. Undir Þjónn fyrir aðsendan póst (POP3, IMAP eða HTTP) skaltu slá inn heiti POP3- eða IMAP4-þjóns. Upplýsingar um hvernig þú finnur heiti (POP3 or IMAP4) þjóns fyrir aðsendan póst er að finna í Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar? síðar í þessu efnisatriði.

  6. Undir Þjónn fyrir sendan póst (SMTP) skaltu slá inn heiti SMTP-þjóns. Upplýsingar um hvernig þú finnur heiti (SMTP) þjóns fyrir sendan póst er að finna í Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar? síðar í þessu efnisatriði.

    Þegar þú hefur fært inn heiti þjóns skaltu smella á Áfram.

  7. Á síðunni Innskráning í internetpóst slærðu inn netfang og aðgangsorð. Ef þú vilt að Outlook Express muni aðgangsorðið velurðu gátreitinn við hliðina á Muna aðgangsorð. Smelltu á Áfram.

  8. Á síðunni Til hamingju skaltu smella á Ljúka.

  9. Á síðunni Internetreikningar velurðu reikninginn sem var verið að setja upp og smellir síðan á Eiginleikar.

    noteAth.:
    Síðan Internetreikningar á valmyndinni Verkfæri er opnuð með því að smella á Reikningar.
  10. Á síðunni Eiginleikar sem á við reikninginn skaltu smella á flipann Ítarlegt og síðan framkvæma eftirfarandi:

    1. Undir Tengisnúmer þjóna, undir Sendur póstur (SMTP), skaltu velja Þessi þjónn krefst öruggrar tengingar (SSL).

    2. Undir Aðsendur póstur (IMAP) eða Aðsendur póstur (POP3) skaltu velja Þessi þjónn krefst öruggrar tengingar (SSL).

    3. Ef POP3-aðgangur er notaður er gott að geyma afrit af skilaboðunum sem sótt eru í staðbundnu tölvuna á þjóninum. Þetta er framkvæmt undir Afhending með því að smella á Skilja eftir afrit af skeytum á þjóninum. Þannig er hægt að fá aðgang að skeytum úr öðrum tölvupóstforritum.

    4. Smelltu á Nota.

  11. Á flipanum Þjónar undir Þjónn fyrir sendan póst er smellt á Þjónninn krefst sannvottunar.

  12. Smelltu á Nota og smelltu síðan á Í lagi.

  13. Á síðunni Internetreikningar skaltu smella á Loka.

  14. Ef þú notar IMAP4 birtast skilaboð þar sem spurt er hvort þú viljir hlaða niður möppum fyrir póstþjóninn sem þú valdir. Smelltu á . Notaðu Outlook Express til að velja hvaða möppur á að samstilla á milli þjónsins og staðbundnu tölvunnar og smelltu síðan áÍ lagi.

Frekari upplýsingar um hvernig á að nota Outlook Express eru í hjálpargögnum sem fylgja með Outlook Express.

Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar?

Þú þarft að skoða eigin POP3-, IMAP4- og SMTP-þjónsstillingar áður en þú getur sett upp POP3- eða IMAP4-tölvupóstforrit.

Horfðu á þetta myndskeið til að læra hvernig hægt er að finna þjónsstillingar fyrir POP- eða IMAP-tölvupóstforrit.

Skráðu þig inn í tölvupóstreikninginn með Outlook Web App til að finna þjónsstillingarnar. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu smella á Valkostir > Skoða alla valkosti > Reikningur > Reikningurinn minn > Stillingar fyrir POP-, IMAP- og SMTP-aðgang. Netþjónanöfnin POP3, IMAP4 og SMTP og aðrar stillingar sem þú kannt að þarfnast eru tilgreindar á síðunni **Samskiptareglustillingar **,undir POP-stilling , IMAP-stilling og SMTP-stilling.

noteAth.:
Ef það stendur Ekki tiltækt hjá POP-stillingu, IMAP-stillingu og SMTP-stillingu kann að vera að notkun á POP eða IMAP-tölvupóstforritum sé ekki uppsett á reikningnum þínum. Frekari upplýsingar er að finna hjá þeim aðila sem hefur umsjón með tölvupóstreikningum þínum.

Hvað annað er gott að hafa í huga?

  • Ef þú veist ekki hvort þú átt að nota POP3 eða IMAP4 skaltu íhuga að nota IMAP4-aðgang því hann styður fleiri aðgerðir.

  • Ef tölvupóstreikningurinn þinn er af þeirri gerð sem krefst skráningar þarftu að skrá hann í fyrsta skiptið sem þú skráir þig inn í Outlook Web App. Tenging við tölvupóstreikninginn þinn gegnum POP3 eða IMAP4 mun mistakast ef þú hefur ekki skráð reikninginn þinn í Outlook Web App. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu skrá þig út. Reyndu svo að tengjast með POP3- eða IMAP4-forritinu. Frekari upplýsingar um hvernig þú getur skráð þig inn á reikninginn þinn með Outlook Web App er að finna í Hvernig á að skrá sig inn í tölvupóstinn með því að nota vafra. Ef þú átt í erfiðleikum með innskráningu, sjáAlgengar spurningar: Vandamál með innskráningu og aðgangsorð eða hafðu samband við aðilann sem stjórnar tölvupóstreikningnum þínum.

Hvar finn ég frekari upplýsingar?