Share via


Uppsetning á POP eða IMAP-tölvupósti á nettengdum farsíma

 

Á við: Office 365 for professionals and small businesses, Office 365 for enterprises, Microsoft Exchange, Live@edu

Efni síðast breytt: 2011-11-23

Þú getur sett upp tölvupóst í úrval netsíma. Ef þú veist hvaða stýrikerfi er í farsímanum þínum skaltu skoða Farsímaaðgerðir til að fá tengla á ítarlegar leiðbeiningar fyrir öll farsímastýrikerfi.

Hvernig set ég upp POP- eða IMAP-tölvupóst á nettengdum farsíma?

Í póstforriti farsímans geturðu sett upp tölvupóst með eftirfarandi stillingum:

  • Netfang: Þetta er fullt netfang þitt (til dæmis tony@contoso.com).

  • Notandanafn: Notandanafnið þitt er fullt netfang þitt (til dæmis tony@contoso.com).

  • Aðgangsorð: Þetta er aðgangsorðið fyrir tölvupóstreikninginn þinn.

  • Þjónn fyrir aðsendan póst: Færðu inn POP3- eða IMAP-vefþjónsheitið. Upplýsingar um hvernig þú finnur heiti (POP3 eða IMAP4) þjóns fyrir aðsendan póst er að finna í Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar? síðar í þessu efnisatriði.

  • Þjónn fyrir sendan póst: Upplýsingar um hvernig þú finnur heiti (SMTP) þjóns fyrir sendan póst er að finna í Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar? síðar í þessu efnisatriði.

  • Ítarlegar stillingar: Ef skilaboðaforritið í farsímanum þínum leyfir þér að setja upp ítarstillingar skaltu ganga úr skugga um að valkosturinn Þjónn fyrir sendan póst krefst sannvottunar sé valinn, og gættu þess að velja Nota sama notandanafn og aðgangsorð til að senda tölvupóst.

Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar?

Þú þarft að skoða eigin POP3-, IMAP4- og SMTP-þjónsstillingar áður en þú getur sett upp POP3- eða IMAP4-tölvupóstforrit.

Horfðu á þetta myndskeið til að læra hvernig hægt er að finna þjónsstillingar fyrir POP- eða IMAP-tölvupóstforrit.

Skráðu þig inn í tölvupóstreikninginn með Outlook Web App til að finna þjónsstillingarnar. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu smella á Valkostir > Skoða alla valkosti > Reikningur > Reikningurinn minn > Stillingar fyrir POP-, IMAP- og SMTP-aðgang. Netþjónanöfnin POP3, IMAP4 og SMTP og aðrar stillingar sem þú kannt að þarfnast eru tilgreindar á síðunni **Samskiptareglustillingar **,undir POP-stilling , IMAP-stilling og SMTP-stilling.

noteAth.:
Ef það stendur Ekki tiltækt hjá POP-stillingu, IMAP-stillingu og SMTP-stillingu kann að vera að notkun á POP eða IMAP-tölvupóstforritum sé ekki uppsett á reikningnum þínum. Frekari upplýsingar er að finna hjá þeim aðila sem hefur umsjón með tölvupóstreikningum þínum.

Hvað annað er gott að hafa í huga?

  • Uppsetning tölvupóstreiknings fyrir farsíma krefst þess að þú sért með virka gagnaáætlun hjá farsímafyrirtækinu þínu.

  • Ef tölvupóstreikningurinn þinn er af þeirri gerð sem krefst skráningar þarftu að skrá hann í fyrsta skiptið sem þú skráir þig inn í Outlook Web App. Tenging við tölvupóstreikninginn þinn gegnum farsíma mun mistakast ef þú hefur ekki skráð reikninginn þinn með Outlook Web App. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu skrá þig út. Reyndu síðan að tengjast með farsímanum þínum. Til að fá frekari upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn á reikninginn þinn með Outlook Web App, sjá Hvernig á að skrá sig inn í tölvupóstinn með því að nota vafra. Ef þú átt í erfiðleikum með innskráningu, sjáAlgengar spurningar: Vandamál með innskráningu og aðgangsorð eða hafðu samband við aðilann sem stjórnar tölvupóstreikningnum þínum.

  • Ef þú getur ekki sent skeyti úr Windows farsímanum þínum með POP3 eða IMAP4 en getur tekið á móti skeytum, er hugsanlegt að uppsetning á tölvupósti í Windows farsímanum þínum sé ekki rétt. Hægt er að laga þetta með því að sækja og setja upp Windows Mobile 6.1 Hotfix (skyndihjálp) til að senda POP- og IMAP-tölvupóst. Smelltu á eftirfarandi tengil til að sækja skyndihjálpina.