Setja upp POP eða IMAP-tölvupóst í Windows Phone

 

Á við: Office 365 for professionals and small businesses, Office 365 for enterprises, Microsoft Exchange, Live@edu

Efni síðast breytt: 2012-11-26

Hægt er að setja upp POP- eða IMAP-tölvupóst á Windows Phone farsíma. Þessar leiðbeiningar eru fyrir tæki sem keyra á Windows Phone 7, Windows Phone 7.5 og Windows Phone 8. Upplýsingar um uppsetningu Windows-síma sem keyra á Windows Mobile 6.x eða öðrum fartækjum eru í Farsímaaðgerðir.

Hvernig set ég upp POP- eða IMAP-tölvupóst á Windows Phone?

  1. Í Start (byrja) skaltu strjúka til vinstri að forritalistanum, velja Settings (stillingar) og velja síðan email + accounts (póstur og reikningar).

  2. Veldu Add an account (bæta við reikningi) og Other account (annar reikningur).

  3. Færðu inn netfangið þitt og aðgangsorð og veldu síðan Sign in (skrá inn). Windows Phone reynir að setja tölvupóstreikninginn þinn upp sjálfkrafa. Ef uppsetningin tekst skaltu fara í skref 6.

  4. Ef þú sérð skilaboðin „We couldn’t find the settings for the account information you entered“ (stillingar fundust ekki fyrir reikningsupplýsingarnar sem voru færðar inn) skaltu gæta þess að hafa fært inn rétt netfang og aðgangsorð og velja því næst Try again (reyna aftur). Ef uppsetningin tekst skaltu fara í skref 6.

  5. Ef ekki tekst að setja tölvupóstreikninginn upp sjálfkrafa skaltu velja Advanced (ítarlegt) og því næst Internet email (netpóstur).

    Þú þarft að færa inn eftirfarandi upplýsingar:

    1. Reikningsheiti   Þetta er lýsandi heiti á reikningnum þínum.

    2. Nafn þitt   Færðu inn nafnið þitt eins og þú vilt að það birtist þegar þú sendir tölvupóst úr símanum þínum.

    3. **Þjónn fyrir aðsendan póst   **Þetta er þjónn reikningsins þíns fyrir aðsendan póst. Fyrir leiðbeiningar um hvernig á að finna heiti mótttökupóstþjónsins, sjá Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar? seinna undir þessu efnisatriði.

    4. **Gerð reiknings   **Þetta er annaðhvort POP3 eða IMAP4.

    5. **Notandanafn   **Notandanafn er fullt netfang þitt, til dæmis tony@contoso.com.

    6. **Aðgangsorð   **Þetta er aðgangsorðið fyrir tölvupóstreikninginn þinn.

    7. Þjónn fyrir sendan póst (SMTP)   Þetta er heiti þjóns fyrir sendan póst. Fyrir leiðbeiningar um hvernig á að finna heiti þjóns fyrir sendan póst, sjá Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar? seinna undir þessu efnisatriði.

    8. Veldu Ítarlegt og veldu reitina Krefjast SSL fyrir móttekinn póst og Krefjast SSL fyrir sendan póst.

  6. Veldu Skrá inn.

Hvernig finn ég vefþjónsstillingarnar?

Þú þarft að skoða eigin POP3-, IMAP4- og SMTP-þjónsstillingar áður en þú getur sett upp POP3- eða IMAP4-tölvupóstforrit.

Horfðu á þetta myndskeið til að læra hvernig hægt er að finna þjónsstillingar fyrir POP- eða IMAP-tölvupóstforrit.

d2955990-a94b-4f10-9abd-9a25266521a0

Skráðu þig inn í tölvupóstreikninginn með Outlook Web App til að finna þjónsstillingarnar. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu velja Valkostir > Sjá alla valkosti > Reikningur > Reikningurinn minn > Stillingar fyrir POP-, IMAP- og SMTP-aðgang. Netþjónanöfnin POP3, IMAP4 og SMTP og aðrar stillingar sem þú kannt að þarfnast eru tilgreindar á síðunni Samskiptareglustillingar, undir POP-stilling, IMAP-stilling og SMTP-stilling.

noteAth.:
Ef það stendur Ekki tiltækt hjá POP-stillingu, IMAP-stillingu og SMTP-stillingu kann að vera að notkun á POP eða IMAP-tölvupóstforritum sé ekki uppsett á reikningnum þínum. Frekari upplýsingar er að finna hjá þeim aðila sem hefur umsjón með tölvupóstreikningum þínum.

Hvað annað er gott að hafa í huga?

Ef tölvupóstreikningurinn þinn er af þeirri gerð sem krefst skráningar þarftu að skrá hann í fyrsta skiptið sem þú skráir þig inn í Outlook Web App. Tenging við tölvupóstreikninginn þinn gegnum farsíma mun mistakast ef þú hefur ekki skráð reikninginn þinn með Outlook Web App. Þegar þú hefur skráð þig inn skaltu skrá þig út. Reyndu síðan að tengjast með farsímanum þínum. Til að fá frekari upplýsingar um hvernig á að skrá sig inn á reikninginn þinn með Outlook Web App, sjá Hvernig á að skrá sig inn í tölvupóstinn með því að nota vafra. Ef þú átt í erfiðleikum með innskráningu, sjáAlgengar spurningar: Vandamál með innskráningu og aðgangsorð eða hafðu samband við aðilann sem stjórnar tölvupóstreikningnum þínum.